12.04.2006 15:02:49 / Indie

Kveðjustund!

Jæja nú er komið að kveðjustund.... þessi síða er búin að þjóna mér vel síðastliðið eitt og hálft árið en allir hlutir taka einhvern tímann enda...... :)

En já.... ALLIR að fara á
http://www.indie.blog.is !!

bæjó,
þorvaldur

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 01:44:01 / Indie

Páskar!

Gleðilegt Páskafrí! :D

The image “http://www.geocities.com/picketfence/5322/easter_bunnyl.gif” cannot be displayed, because it contains errors.

Loksins eitthvað frí sem maður fílar í botn. Jólafríið saug meira en allt eins og ég bjóst við, hélt að þetta yrði það líka en það virðist ekki verða. Búið að vera fínt hingað til, skrapp á skagann til Ingós um helgina og svo á Ice Age 2 um sunnudagskvöldið. Eeeeelska svona steiktar teiknimyndir... eða tölvumyndir, varla teiknimyndir lengur... allt gert í tölvu. Sáum trailera úr 2 öðrum svoleiðis myndum sem eru að koma... önnur einhver rauðhettu mynd og hin einhver skógar mynd og hlógum okkur máttlausa yfir..... get ekki beðið eftir að sjá þær :D Svona myndir eru einhverjar fyndnustu myndir sem hægt er að finna!
The image “http://www.tu-darmstadt.de/surface/news/scrat.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Svo er ég að spá í að kíkja heim á morgun (í dag) loksins svo getur maður farið að rúnta eitthvað með pabba.... æfingarleyfið komið í hús :D Síðan liggur væntanlega leiðin aftur hingað í bæinn á föstudaginn þar sem orðið á götunni er að Brynjar ætli að halda eitt stykki teiti þá. Ekki slæmt það :)

En jæja, hef nú ekki mikið að skrifa um. Reyni að blogga kannski aftur í vikunni..... farinn að hlusta á þennan mann hér fyrir neðan..... kominn í dýrlingatölu hjá mér :)
Getið hlustað á eitthvað með honum hér :
http://hype.non-standard.net/search/amos%20lee/1/

The image “http://gauntlet.ucalgary.ca/~gauntlet/eg/eg2/20050310/amoslee-spun-web.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

KV, INDIE

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 17:24:27 / Indie

AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAARGH

Ég held ég sé að sturlast. Fyrirgefið hvað þetta blogg er stutt en ég bara NEEEENNNI EKKI að skrifa allt þetta aftur. Var búinn með svaka blogg hérna og svo fer allt til fjandans og æji djöfull!
Allavega í stuttu máli eru þessir dagar búnir að vera glataðir. Í gær var allt í góðu, geðveikt veður og stefndi allt í skemmilegan dag. Fótboltaæfing í fyrsta sinn í langan tíma, músíktilraunir og bjórkvöld. Æfingin endaði í rifrildum við ógeðslega tregar smástelpur og heimska kalla, músíktilraunir enduðu með því að ég fór ekki því annað fólk hafði víst meiri áhuga á morfís en músík. Bjórkvöld endaði með engu þar sem MH var 18+ og MR var MR only og við enduðum hérna heima að drekkja sorgum okkar í nammiáti og svefni.

Og þetta er allt útaf jafnvægi lífisins sem ég er pottþéttur á að sé til. Síðasta helgi var mesta snilld í heimi! en svo þessi helgi glataðari en ALLT!! Við erum að spá í að binda bara endanlega enda á þetta..... kjarri hallast meira að byssunum og hoppa fram af húsþaki en ég að snörunni. Eigum samt eftir ða athuga þessi mál enn frekar.

Ætla fara demba mér aftur í rotnindi og hlusta á Helga Val, nýju fetish sveitina mína Feeder og nýja Streets diskinn...... BÆ

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 21:14:45 / Indie

GEÐVEIKA HELGI!

Ómægod.... þessi helgi er einhver sú alskemmtilegasta sem ég hef upplifað leeeengi, jafnvel nokkurn tímann! Eins og kannski sumir muna þá var plan hjá okkur í FC Elvari að skella sér í bústaðarferð í pulsupartý af bestu gerð.... fínt til að þjappa hópnum saman og svona en það gerði mun meira en það! Sumir afhreinkuðu sveininn sinn, sumir töluðu meira um daginn og veginn heldur en þeim er ætlað, sumir voru í ofsaflippskasti en það var alveg ljóst að ALLIR skemmtu sér geðveikislega vel!

Ferðin hófst á föstudaginn þegar við lögðum af stað til nafla alheimsins, hverósins, þar sem reykjavíkupakkið(strákarnir) skemmtu sér konunglega yfir Bóbó, apanum í eden og ég held að ég hafi sjaldan skammast mín jafn mikið, enda hélt ég fjarlægð minni mikilli frá þeim. En mikið afrek tókst þegar ég og kjarri fórum ískaldir í ríkið og keyptum eitt stykki afmælisgjöf sem var freyðivín. Flottir á því :D

Svo var komið í bústaðinn og við vorum þar bara í góðu tjilli þar til um kvöldið þegar farið var í afmælispartý á hóteli útí sveit hjá hellu.  Vorum reyndar í miklu veseni að finna staðinn og enduðum meðal annars fyrir fram ógeðslega spúkí skemmu í kolniðamyrkri og það lá við að allir hafi migið á sig af hræðslu. Myrkfælnin á háu stigi, a.m.k. hjá mér og kjarra! En anyways.... við fundum þetta á endanum. Og þar var alveg slaaaatti af fólki og munaði minnstu að við hefðum snúið aftur til baka í bústaðinn í fyrstu. En eins gott þá gerðum við það ekki enda var bara gaman þarna! Sumir lentu í bílveltu, sumir þurftu að syrgja látinn símann sinn, sumir dóu beinlínis, sumir voru í villtu kynsvalli en eins og áður sagði, þá held ég að allir hafi skemmt sér vel. Nema hvað að flestir okkar fengu ekki neitt aaalltof góða svefnaðstöðu. Sumir í sófa, sumir á gólfi, sumir á sentímeters þykkum dýnum og svo vöknuðu allir eldhressir klukkan 9 um morguninn. Sumir með ákrotað typpi framan í sér eða e-ð eftir megaflipp kjarra og ásdísar.
The image “http://images.snapfish.com/346655776%7Ffp33%3B%3Enu%3D3278%3E794%3E392%3EWSNRCG%3D32335%3B4757%3C%3B4nu0mrj” cannot be displayed, because it contains errors.
Nafn þessara manneskja skal ekki vera getið, nema hvað að drengurinn byrjar á B og endar á rynjar. PS. SETT INN MEÐ GÓÐFÚSLEGU LEYFI HANS :*
The image “http://images.snapfish.com/346655776%7Ffp339%3Enu%3D3278%3E794%3E392%3EWSNRCG%3D32335%3B4755673nu0mrj” cannot be displayed, because it contains errors.
"Einhverjir hellustrákar" segir ljósmyndarinn en ég er nokkuð viss um að þeir séu það EKKI!! Ég, greipur og jolli

Það má svo segja að laugardagurinn hafi verið nánast eeendalaus enda ekki á hverjum degi sem maður vaknar klukkan 9 í fríi... eða allavega ekki ég! Og það var ekkert nema gott mál, enda þá bara lengur meira gaman. Roadtrip músíkin var í fyrirrúmi þar sem ber að nefna bönd sem maður hlustar ekki á alveg á hverjum degi líkt og Blink og Jimmy Eat World 8) Þar skemmtum við okkur þar til allir steinrotuðust og vöknuðu AFTUR eldsnemma klukkan 10. Já líkamsklukkan ekki alveg að gera sig hjá okkur. Þá tók bara við tjill, þrif og heimleið. Stoppuðum við og fórum í sund í hveragerði og svo enduðum við hérna uppí íbúð í bænum, hlustuðum á Mogwai og rifjuðum upp ferðina.

Allavega að mínu mati, og strákana líka án efa þá var þetta bara frábær ferð og þær eiga án efa eftir að verða fleiri í framtíðinni. Sumir gráta sárann heima fyrir að komast ekki en svona er þetta bara :(

Nú er það aðalskemmtunin.... $#$#$&$ ritgerð, bóklestur og fleira gotterí. Skítt með það, það víkur undan því að skella nokkrum myndum úr bústaðnum hérna á síðuna. Stend reyndar í einhverjum helvítis vandræðum með að setja inná tölvuna en allavega........

Image hosting by TinyPic
Ég og Arnar að deyja úr harðindum með afar skemmtilegan drykk

Image hosting by TinyPic
Fjölskyldan við matarborðið :) Vantar reyndar 2 meðlimi

Image hosting by TinyPic
Sviðsett nördamynd, allir í tölvunni með snakk og gos :$

Image hosting by TinyPic
Eitursnjallir við eldamennskuna

Image hosting by TinyPic
*hóst* slæm áhrif pulsupartýa ? *hóst*


Því miður eru margar myndir sem eiga í erfiðleikum með að drullast inná tölvuna en vonandi að það lagist.
Takk þið sem voruð með í ferðinni fyrir frábæra helgi! Og partýfólk líka

Kv, Indie a.k.a. Þorvaldur a.k.a. toto

» 17 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 22:01:25 / Indie

Bústaður og Ben Gibbard!

Loksins er maður losnaður við þessi veikindi. Og akkúrat á góðum tíma, fyrir bústaðarferðina hjá fc elvari :D Það verður magnað, gist á hóteli á hellu frítt fyrri nóttina og svo bústaðurinn seinni nóttina, can't wait!

Er annars á fullu að hlusta á snillingin Ben Gibbard! Dýrka þennann mann, sem er á bakvið Death Cab og Postal Service. Mæli með coveri hjá honum á Complicated með Avril Lavigne ;)
HÉRNA
. Svo eftir á hann gerir hann bara grín að því :P
The image “http://www.underexposed.org.uk/cutie/deathcab1.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Hah ég hef nú lítið annað að segja.... sjaldan gert blogg sem er meira í myndum en máli. Vá hvað þetta var vel orðað!
Annars um þessar mundir er ég rétt að vona
  • að ég fari til Boston með stjúpmömmu í vor/sumar!
  • að helgin verði geeeðveik :D
  • að ég og brói kaupum bíl saman í haust og eigum tvo, eða hann kaupi sér og ég hirði mözduna ;)
  • að ég komist yfir það að lesa heila bók og skrifa ritgerð plús allt heimanámið án þess að gera það um helgina! :|
  • að ég hafi e-ð að gera um páskana =/
  • að ég fái æfingarleyfi sem fyrst, get ekki beðið!
  • að komast í bolta sem fyrst eftir helvítis veikindin
Jæja ég nenni ekki meir.... ef þið viljið meira með Ben Gibbard þá getiði hlustað á þessa snilld... Postal Service lagið Such Great Hights sem var í Garden State með honum einum.... HÉRNA
Svo eitt enn...ef þið hafið áhuga:
Ben Gibbard - Recycled Air

Vona bara að þið eigið góða helgi og heyrumst aftur eftir hana.... vonandi með myndir og gotterí ;)

Kv, Indie


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 22:35:48 / Indie

JESS... VEIKUR!!

Ætla gera hér eina tilraun til bloggs þó svo ég sé nær dauða en lífi! Varð svo hryllilega veikur í dag eftir miklar ófararir í gær útaf helvítis strætókerfis ógeðinu. Verð að leggja mig á svona hálftíma fresti því ég er svo máttlaus og fæ dúndrandi hausverk við minnstu hreyfingu, á meðan ég ét einhverjar gagnslausar pillur. En það var þannig að það var kíkt í bíó í gær, Capote nánar tiltekið. Alveg góð mynd, samt ekkert ofsaleg..... bara mynd sem maður verður að sjá. En allavega, þegar úr bíóinu var komið var klukkan um 20 min í 1 og þá var haldið útí strætóskýli. Og þá komumst við að því að eftir ða helvítis strætókerfisógeðinu var breytt síðustu helgi þá ganga allir strætóar bara til miðnættis um helgar! Alveg illa þroskaheft þetta fólk sem ákveður þetta, nú verður maður alltaf að redda sér fari eða taka rándýrann taxa ef maður er einhversstaðar úti eftir miðnætti um helgar.

En já, við reyndum að hringja í alla sem við vissum um en ekki séns að sækja okkur og heldur ekki séns á taxa svo þá þurfti maður að labba heim. Klukkutími í slabbi og ógeði, illa klæddur og með sundlaug í skónum. Ekki furða að ég hafi bara verið aumari og úldnari en allt í morgun! Slapp samt vel þar sem Sara og Ingunn þurftu að labba í kópavoginn! 8| Já btw... eruði á lífi ?

Það versta við þetta alltasaman er samt það að það er ball á miðvikudaginn! Og þá grímuball, sem gerir það ennþá verra... því ef ég lagast ekki fyrir miðvikudaginn þá get ég ekki reddað mér neinum búning né keypt mér miða..... og get ekki keypt miða fyrr en ég lagast því kannski lagast ég ekkert fyrir ballið =/Mikið svekkelsi vægast sagt! Fullkomin tímasetning fyrir þessi helvítis veikindi....!

Úff ég verð að fara sofa eða e-ð. Orðinn alltof þreyttur, vaknaði um 10 leytið í morgun því mér leið svo illa! :frown: Allavega vona ég bara það besta og get skellt mér á ballið á miðvikudag... þangað til.... bæjó.
Image hosting by TinyPic
wild action! díana og systir hennar, debora :lol:

Indie

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 00:22:50 / Indie

03.03.2006

Hæ! ég loksins nenni að blogga.... en já, síðan þann 21. feb hefur ýmislegt skeð. MH árshátíðin var fyrir hva, einni og hálfri viku á hótel sögu og var bara nokkuð fín.... Skrautlegt fyrirpartý þar sem klósettpappír kom mikið við sögu og lala ball, þar sem ég get ekki með nokkru móti fílað þessa "Milla", jafnvel þó maður sé í ákveðnu ástandi! Og þá er það slæmt!
Svo var það LoftkastalaKvennóPartýið fyrir sléttri viku og það var baaara gaman! Fyrirhittingur hjá Sunnu þar sem nokkrir subway'arnir flugu niður svalirnar og fólk sýndi sönghæfileika sína í án efa alleiðinlegasta singstar leik sem til er, 80's HRYLLINGUR! Þvílíkur horbjóður segi ég bara.
Já partýið var stuð allt þar til svona 50 löggur mættu á svæðið, mikið að gera hjá þeim þetta kvöldið greinilega, og þá var bara haldið út og endað hjá guffa þar sem maður fékk afnot af eitt stykki rúmi.

rsht044.jpg
sætu sætu...!

En nóg með hvað ég er búinn að gera... alltaf jafn leiðinlegt ða lesa það! En ég var að spá hvað maður getur eiginlega gert til að láta sig ekki rotna alveg til fjandans í sumar =/ Langar alveg óendanlega mikið til útlanda, jafnvel Hróaskeldu, en efast um að það verði af því. Verður bara að vinna vinna og vinna og gera ekki rassgat í heila 3 mánuði! Mér bara kvíður fyrir sumrinu satt að segja....! Er alltaf að heyra um hina og þessa sem eru að fara til Spánar eða USA eða hvað sem er og ég þoli það ekki..... :(
Koddu með hugmynd hvað sé hægt að gera í sumar... plís! Alveg 3 mánuðir í það....

Argh... klukkan orðin margt, verð að fara læra jarðfræði. Sem ég hélt að væri svo rotin en ég fékk 9.6 í prófi úr henni í dag!!! Og átti að fá þessi 0.4 stig líka því ég var með svörin rétt bara þessi heimski kennari er svo ógeðslega smámunasamur $#$%#%$#"#$
En jæja..... er ennþá með Josh Rouse á heilanum svo það er bara hann og jarðfræði fram að svefni... je!

Góða nótt
Indie


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 00:16:23 / Indie

GVÖÐ

Crazyyy skóli.... allt brjálað að gera. Var að enda við að klára staðfræði próf í þessari úrkynjuðu jarðfræði í síðustu viku og gekk bara svona lala. Var að springa úr stolti yfir að hafa lært alla jökla og sýslur landsins en það tók ekki langan tíma að drepa það niður þegar annað fólk var búið að læra svona þúsund sinnum meira *hóst* sara... Svo er það saga, með lífsleiknidraslinu sem er einhver alglataðasti kennari sem til er, sem léttir ekki fyrir manni að læra um grikki, súmena, mýkenumenn og hvað þetta heitir allt fyrir tuttuguþúsund árum.
Síðan á morgun er ég að fara í minn fyrsta ökutíma að keyra í fyrsta sinn á ævi minni :| fokk ég er stressaður! Ég er ekki einn af þessum sem hefur farið í sveit alltaf á sumrin og rúntað bara vikurnar saman eða e-ð álíka... neinei, eina reynsla mín af keyrslu er að stýra þegar ég var svona 6 ára!  Þannig ökuhæfileikarnir eru mjög líklega löngu gleymdir og grafnir, þannig ekki láta ykkur koma á óvart ef það verður einhver fjöldaárekstur á miklubrautinni á morgun..... þið vitiði hverjum það var að þakka :^)

Ekki bætir það úr skák fyrir námið að það er MH árshátíðin á fimmtudaginn.... því það er svo próf daginn eftir :| Og getið í hverju.... þessi HELVÍTIS jarðfræði sem ég er að drulla uppá bak í! En jæja, skítt með það... maður mætir bara gífurlega hress í prófið eftir nokkra tíma svefn og rúllar því upp!

Ætlaði að koma með eitthvað gott comeback blogg eftir smá fjarveru en nei það gekk ekki alveg.... fer að fara sofa.... er alltaf svon andskoti þreyttur og get aldrei talið mér trú um að drulla mér í rúmið á réttum tíma! Anyways.... skelli Josh Rouse á fónin og segi ADIOS

The image “http://www.funnyhub.com/pictures/img/strange-car-crash.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
ég á morgun.... ökuhæfileikarnir leyna sér ekki


Kv, Indie

» 9 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 23:25:10 / Indie

Ljúfa vika

Ohhhh þetta er búin að vera svo ljúf vika. Sofa út nánast hvern einasta dag og engin lærdómur! Lærðum bara á mánudaginn..... svo voru tjarnardagar, og valdi ég bíó og bláa lónið. Ég var alveg sannfærður um að við værum að fara á einhverja glataða mynd en svo komst í ljós að það var Johnny Cash myndin, Walk The Line. Og þrátt fyrir að mig langaði alveg þvílíkt að sjá hana þá langaði mig EKKI að sjá hana kl:2 á þriðjudegi! Úff en ég lét mig samt hafa það og ég varð allls ekki fyrir vonbrigðum. Frábær mynd og kom mér á óvart þegar ég frétti að Jaquin Pheonix og Reese Witherspoon hafi sungið sjálf alla myndina! 8| Hélt að þau væri bara að mæna og raunverulega upptökur væru í gangi því þetta var svo flott!
The image “http://www.twitchfilm.net/pics/cash.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Já svo var farið í bláa lónið á miðvikudaginn.... hafði ekki farið þangað síðan ég var í bekkjarferð í 2. bekk í grunnskóla eða e-ð álíka. Og það var svosum ágætt... maður endist ekki lengi þarna enda ekki mjög "skemmtilegt" nema bara þægilegt að slaka á.
Fimmtudagurinn fór svo bara í eitthvað árshátíðardæmi. Morgunhittingur var um morguninn hjá NF og NÞ og þar var m.a. nuddað stýrurnar úr augunum, étið og kosningarúrslit úr bekkjunum tveimur. Svona "herra" og "brosið" og "rassinn" og þvíumlíkt. Fór maður þaðan svo með einn borða heim sem á stóð tónlistarfríkin.... já vafasamur titill sá.... neinei segi svona ;)
Svo var það náttúrulega árshátíðin sjálf um kvöldið.... sem var svosum fínt í sjálfu sér. Allavega miðavið allar hörmungarspár mínar og svartsýni frá helvíti þá var þetta ágætt.

Og nú byrjar skólinn aftur..... andskotinn! Er svo alveg lengst frá því að nenna byrja læra og vakna snemma aftur :whut:
Hvað þá að byrja aftur að REYNA velta fyrir sér þessari helvítis jarðfræði og sögu.... glötuðustu áfangar í heimi!
Framundan er svo árshátíð MH sem maður skellir sér vonandi á.... Sigrún systir að koma heim :D hlakka til að sja þig! :D skemmtiferð hjá FCE ef allt gengur eftir og margt fleira :haha:

Þetta er nú bara orðin bókstaflega DAGBÓK. Þegar maður segi lítið annað hvað maður er að gera, búinn að gera og svona rugl. Já, þetta kallast bloggstífla og ég þjáist af henni núna... því miður. En svona til að kæta ykkur upp þá mæli ég stórlega með því að þið athugið "nýju" tónlistarsíðuna okkar óttars.... www.cygnus.co.nr
og líka SKIPA ég ykkur að reyna klára þennan æðislega leik http://www.winterrowd.com/maze.swf
og svo smá svona lög vikunnar... sem maður er ekki búinn að gera lengi :)
Svo er maður líka búinn að breyta og bæta þarna "hver er indie?" og henda allskonar óþarfa drasli af síðunni... já njótið vel!


1. Clap Your Hands Say Yeah - The Skin of My Yellow Country Teeth
2. Clap Your Hands Say Yeah - Gimme Some Salt
3. American Dollar - Everyone Gets Shot
4. dEUS - 7 days, 7 weeks
5. The Arctic Monkeys - Riot Van
6. Bright Eyes - First Day of My Life
7. Keane - We Might As Well Be Strangers
8. Johnny Cash - Folsom Prison Blues
9. Johnny Cash - I See A Darkness
10. Sufjan Stevens - Decatur

Kv, Indie

» 11 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 02:12:12 / Indie

"Júróvisjón"..... Jája, gúbbídúbbí

Nú held ég að við getum alveg eins sagt að við séum búin að vinna þessa Eurovision keppni. Silvía nótt var að enda við að komast áfram (suprise) í einhverja asnalega úrslitakeppni um hver fer í lokakeppni. Og vá hvað þetta lag hennar var svo lang best þarna þótt þetta sé bara hálfgert djók! Bwhaha hin lögin voru líka svo hrikalega slöpp að það var bara hryllingur. Hvað þá þau sem voru hin kvöldin. En váá hvað þetta rugl er dregið langt.... 5 lög sem komast áfram á hverju kvöldi og svo alltíeinu einhverjum 2 öðrum lögum hleypt áfram líka og svo eitthvað úrslitakvöld þar sem öll lögin verða spiluð aftur ?!?
Þetta er svo ógeðslega asnalegt... við höldum að við séum svo rosa "pro" í þessu og höfum svo úr svo miklu að velja að okkur gengur pottþétt vel í þessari keppni sem enginn nema við og örfáar aðrar veit hvað er! Guði sé lof fyrir silvíu nótt að taka þátt því það bæði gerir það að verkum að maður nennir virkilega að horfa á þessa keppni og að við skítum ekki algjörlega uppá bak. Tja, nema allar smástelpur landsins taki sig til og sendi Birgittu aftur, vá það væri frábært....... skil nú ekki hvað manneskjan er að láta sig dreyma með því að reyna komast inn og ganga vel í þessari keppni í annarri tilraun.

Eitt sem mér finnst líka aaalveg asnalegast í heimi og það er þegar við erum að reyna fara þýða svona ýmisleg orð... t.d. hin frábæra þýðing af Superbowl yfir í Ofurskálin... hahaha... en í þessu tilviki orðið Eurovision. Það er alltaf talað um Evróvisjón. Síðan hvenær var visjón/visíón þýðing af vision? Af hverju er þetta ekki þýtt sem Evrósýn eða e-ð álíka. Já ég veit, það hljómar asnalega en það er samt ekki jafn heimskulegt og að þýða það yfir í visjón eða visíón eða einhverja úrkynjaða útgáfu af enska orðinu.

En nú er óskarinn bráðum að koma og maður reynir að kíkja á einhverjar af myndunum sem eru tilnefndar. Oftar en ekki eru svona óskars myndir alveg hörmulegar vægast sagt. Nefni til dæmi Lost In Translation sem er einhver alleiðinlegasta mynd sem hægt er að sjá, mæli semsagt EKKI með henni nema þið hafið einhverja pyntingar í huga.
En nú í ár eru þær mjög góðar, reyndar hef ég bara séð þrjár í þessum helstu verðlaunum en held að hinar séu líka góðar. Sú fyrsta er Brokeback Mountain sem er alveg frábær. Samt ekki beint mynd sem manni langar virkilega að sjá aftur nokkrum vikum eftir að hafa séð hana heldur bara gæðamynd. Held að það sé klárt mál að hún vinni flest verðlaun eins og besta myndin, Ang Lee sem leikstjóri og ef Heath Ledger vinnur ekki besta leikarann þá missi ég allt mitt álit á þessum verðlaunum.
Hin myndin sem ég hef séð er Munich og er hún stórfín líka. Kom mér á óvart hversu mikil spennumynd þetta er, bjóst við meiri svona "óskarsverðlauna" mynd. En það er einmitt ástæðan fyrir því að ég held að hún eigi ekki eftir að vinna neitt. Sama skapi með Crash, kom mér soldið á óvart að sjá hana þarna.... í staðinn fyrir t.d. Cindarella Man. Jújú, Crash er fín mynd og gaman að svona spá í hana þar sem hún er soldið svona twist en samt ekki í neinum ofur gæðaflokki.

Jæææææja, held að þetta sé bara eitthvað lengsta blogg sem ég hef gert!  og það er ekki enn alveg búið... þó ég verð að fara sofa ef maður ætlar að geta spriklað eitthvað í fótbolta á morgun. Mæli með að þið kynnið ykkur hina frábæru sveit Clap Your Hands Say Yeah og snillingin Sufjan Stevens sem ætlar sér að gera disk með öllum 50 fylkjum Bandaríkjanna. En hann er búinn með 2 með Illionois og Michigan :P a looooong way to go!

Þá er þetta komið nóg..... ætla skella hérna fyrir neðan nokkrum spurningum sem er víst nýjasta æðið í bloggheiminum og auðvitað má maður ekki vera ekki í tísku. Endilega svarið þeim ef þið þorið! eða tjáið álit ykkar á öllu þessu rugli hér að ofan :lol: Annars eruði þið tótalí lúðar!

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

kv, INDIE

» 7 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 21:41:52 / Indie

Bloc Party - Silent Alarm

The image “http://static.flickr.com/5/7310881_2a3c23f170.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Jú mikið rétt... þetta eru snillingarnir í Bloc Party sem eru nánar tiltekið þeir Kele Okereke (Söngur og Gítar), Russel Lissack (Gítar), Gordon Moakes (Bassi og Söngur) og svo loks Matt Tong sem ber húðirnar.
Þeir gáfu út plötuna Silent Alarm í fyrra og oftar en ekki var hún á árslistum fyrir það ár. Og er að mínu mati með betri "debut" plötum sem ég veit um.

Hún hefst á laginu Like Eating Glass og opnar það mann alveg fyrir plötunni. Mjög grípandi lag með soldið spes texta sem fjallar svona í stuttu máli um að það sé eins að drekka eitur og að éta gler... haha já áhugavert :P Næstu lög: Helicopter, Positive Tension og Banquet eru í sama kantinum, mjög svo grípandi gítar riff og hressleikinn í fyrirúmi. Oft á tíðum getur maður heyrt greinilega áhrifavalda úr rokkinu á níunda áratuginum líkt og Sonic Youth og bresku "new wave" böndunum líkt og Joy Division og The Cure. Þó svo þær (new wave böndin) sé einar af þessum sveitum sem ég get bara engan veginn fílað af einhverju móti (eða nokkuð annað úr 80'sinu) þá eru eftirfarar þeirra líkt og Bloc Party og fleiri oftar en ekki frábær bönd. En nóg um það.
Fimmta lag plötunnar er lagið Blue Light, fyrsta eiginlega "ballaða" plötunnar og sýna þeir þar hversu magnaðir þeir geta verið í mjúku lögunum. Næsta lag, She's Hearing Voices er lítið hægt að segja um, eingöngu sama uppá teningunum og í byrjun disksins.
Og þá er komið að seinni helming og mínum uppáhalds hluta plötunnar. Sá helmingur hefst á This Modern Love. Elska þegar gítarplokkið byrjar í laginu og Kele Okereke hefur sönginn. Fyrri hluti lagsins einkennist mikið af því að það er eins og það séu 2 að syngja nema bara með eins rödd. Þar sem hver setning er tekinn upp hægri og vinstri til skiptis og svo í miðju laginu þá sameinast þessar 2 "raddir".
Í nokkrum lögum á þessari plötu er "fjallað" soldið um pólítík. Líkt og í Helicopter sem skítur á Bush og Bandarísku ríkistjórnina og í Pioneers sem er áttunda lag plötunnar. Þar syngur Kele gegn stríði og hljómar ein setningin m.a. svona "We promised the world we'd tame it... What were we hoping for?". Já það er spurning, eftir hverju erum við eiginlega að vonast eftir allt sem við erum búnir að gera heimnum? :$
Price of Gas, það níunda í röðinni, er að mínu mati lakasta lag í plötunni. En engu að síður gott en fellur samt í skuggan af hinum.
Það kemur hinsvegar ekki lögunum þar á eftir að sök þar sem 3 af þeim 4 síðustu eru að mínu mati bestu lög plötunnar. Það fyrsta, So Here We Are, er ein af þeirra fallegu ballöðum. Þar gengur allt upp, söngurinn fullkominn ásamt gítarnum og öllu klappinu.
Eftir því kemur lagið Luno sem svipar mjög til upphafslags plötunnar, Like Eating Glass, þar sem sýrður textinn og hörð gítarriffin eru í fyrirrúmi.
Og þá er komið að síðustu tveimur lögunum sem loka plötunni svo fullkomlega að ég á ekki orð yfir það. Algjör snilld, ætti víst að vera nóg til að lýsa því. Frábær dæmi um hversu mikill snillingur Kele er í lagasmíðum. Það fyrra er lagið Plans. Textinn við það er alveg frábær og lagið einfaldlega, eins og áður sagði, snilld.
Lokalagið Compliments er, ásamt Plans, án efa í toppnum á Most Played í iPodinum mínum :P Þegar lagið byrjar þá gæti maður haldið að maður sé alveg eins að hlusta á Sigur Rós eða Mogwai. Textinn einkennist mikið af vonleysi og uppgjöf, líkt og maður hafi ekkert annað að gera en að eldast, grána og deyja. Sýktur af bakteríum og nikótíni. En þó það sé svo niðurdrepandi og svartsýnilegt þá engu að síður er maður með bros á vör eftir lokasekúndur disksins þar sem maður getur lítið annað en verið sáttur með útkomu þessa disks :)
The image “http://images-jp.amazon.com/images/P/B0006OR288.09.LZZZZZZZ.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Því myndi ég gefa honum 3.5 af 5 heilum í einkunn, sem er í sjálfu sér mjög gott! En jæja, nóg komið. Endilega segið ykkar skoðun

Kv, Indie



» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 01:22:54 / Indie

Helgin, leti og margt fleira nytsamlegt í baksturinn

Góða nóttina... ætla bara svona aðeins að gefa smá lífsmark frá mér svo þið getið hætt að hafa áhyggjur. Helgin var svona í slappara lagi :/
FSu ball var með hinni æðislegu(kaldhæðni) Kung fú hljómsveit á föstudaginn. Æji einhvern vegin var ég búinn að ákveða fyrirfram að þetta ball yrði ekkert spes og ég stóð við það allan tímann. Samt ágætt að sjá gamalkunnið fólk en annars var þetta ekkert spes.
Og auðvitað komst maður svo að því daginn eftir að bjórkvöldið hjá kvennó hafi bara verið alveg brjáluð skemmtun. Djöfull ÞOLI ÉG EKKI þegar ég vel alltaf vitlaust í svona 50/50 ákvörðunum. Í þessu tilviki, fara á ballið í staðinn fyrir bjórkvöldið. Ég er að segja ykkur, ef ég myndi stinga hendinni í poka með 5000 kr seðli og einum aur þá myndi ég fá aurinn í svona 99 skiptum af 100. Svo kallast þetta alltaf 50/50 ákvarðanir... djöfulsins kjaftæði!

En já, svo fór restin af helginni í svefn og sjónvarpsgláp... ekki slæmt í sjálfu sér en maaargt nytsamlegra hægt að gera. Hvað þá þegar maður er að fara í stærðfræði próf daginn eftir. Er orðinn alveg hryyyllilega latur að opna bók! Ég hefst alltaf handa með að fletta blaðsíðu svo þegar ég er kominn svona hálfa leið með flettuna þá gefst ég upp og sný mér að einhverju öðru ávanabindandi líkt og MSN eða e-ð. Og þá er ekki séns að maður fari að læra. Og talandi um leti, nú eru 7 tímar í skólann og ég er orðinn alveg drulluþreyttur en nenni ekki að fara sofa. Hvað gerir maður þá, jú best að fara bara blogga. Já, það gerist sko ekki verra en þetta.

En jæja, best að fara gera e-ð í þessu. Farinn að hlusta á Ryan Adams og sofa. Er orðinn alveg háður þessum manni!! Farið útí plötuverslun og kaupið ykkur meistaraverkið Heartbreaker NÚNA!!!!!!!!!!!!!!!!!

Image hosting by TinyPic
Gífurlega hress mynd frá búðarrápi í Belgrad í sumar í tilefni myndadisksins úr Serbíu og 10.000 kr. afganginum sem við vorum að fá :D
ég-oddur-reynir-ari*fallegur svipur:P*-snorri


KVEÐJA, Indie

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 17:50:28 / Indie

Bloggleysa

Æjæj, 21 dagar búnir af árinu og alveg 3. bloggið komið á skrið. Hrikalega er maður orðinn slappur. En jæja, nóg með það. Held ég sé alveg hættur við þetta árslista diska dæmi þar sem ég fæ aldrei sjálfan mig til að gera það vegna óhóflega mikillar leti sem hefur hrjáð mig síðustu vikurnar. Svo maaargt sem maður verður að gera en getur aldrei drullast til að koma því í verk. Ó hve lífið væri gott ef maður gæti lokið þessu öllu af sem fyrst!
Annars lítur allt út fyrir alveg ömurlegt laugardagskvöld, ekkert að gerast :( Við í FCE (nýtt nafn í bígerð) slóum heimsmet í gær eftir æfingu í gær með því að rúnta borgarhlutana á milli með 7 manns troðið í dverga Polo og með nýbakaðann bílstjóra undir stýri. Skruppum á Jarhead sem var alveg bara hin fínasta mynd. Ekki þessi venjulega ameríska strategía um stríðsmyndir þar sem skothríðirnar dynja yfir meirihlutann í myndinni og einhverja voða hetjur í aðalhlutverki. Nei, það var varla neitt skotið í þessari mynd og var sýnt eiginlega hvernig raunverulega stríð eru. Allavega einhver besta stríðsmynd sem ég hef séð.

Næstu vikum verður svo FSu ball á föstudaginn og svo árshátíðin okkar í kvennó viku eftir það á Selfossi. Það var fínt þó svo ég hafi mínar efasemdir um þetta árshátíðarball, held það verði heldur glatað. Mjög líklega ekkert fyrirpartý eða neitt og maður fer ekki í neinu stuði á ballið.
En jújú, það verður ábyggilega alltílagi. Mest er að hugsa útí hvað skal gera í kveld.... any suggestions ?

The image “http://citygirl.typepad.com/foxymoron/images/ryanbw.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Ryan Adams.... snillingur!

Kv, Indie

» 16 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 00:20:39 / Indie

Jájá

Hef ekki alveg fundið löngun til að blogga eða nennt eða haft sérstakan tíma fyrir það uppá síðkastið og það er lítið búið að breytast.
Byrjaður loksins í fótboltanum áður :D Bæði með kjarra, jolla, arnar og strákunum í FC Elvari og Hamri þegar þeir æfa í bænum. Bara gaman að byrja aftur :)
Svo hef ég verið að vinna á fullu í herberginu mína blessaða hérna í hlíðunum sem er nú loksins eiginlega tilbúið. Búið að mála mörgum sinnum, parketleggja og allesammen og svo fer helgin vonandi bara í að flytja :) Þá get ég loksins gert svona plötur ársins 2005 þegar ég fæ tölvuna mína með allri tónlistinni...
En já, semsagt alveg grútömurlega leiðinlegt blogg enda nenni ég ekki að skrifa eitthvað umhugsunarvert en ég vildi aðallega deila einu hérna með ykkur. Þið hafið væntanlega flest hver heyrt um þetta svakalega DV mál þar sem maður fyrirfaraði sér eftir að fyrirsögn um hann kom á forsíðu DV. Rak augun í eitt mjög fróðlegt á heimasíðu Bubba Morthens en hann er víst búinn að semja lag/ljóð um þetta mál alltsaman og ég verð bara að segja ða þetta er hrein snilld hjá manninum.

Njótið vel....

Sannleikurinn alla leið
 
 Tökum svona kauða
dæmum hann til dauða
forsíðuna auða
viljum ekki í dag

Ekki benda á mig
segir ritstjórinn
ég skrifa bara sannleikann
það er það eina sem ég kann

 

Ekki benda á mig
hvíslar sá nafnlausi
og á lyklaborðið slær svo létt
þetta var jú sölufrétt

 

Ekki benda á mig
hrópar eigandinn
ég skipti mér aldrei af
þessa skipun ég aldrei gaf

 

Tökum svona kauða
dæmum hann til dauða
forsíðuna auða
viljum ekki í dag

 

Ekki benda á mig
hrópar staffið allt
sannleikann verðum að segja
sorry að hann skildi deyja

 

Ekki benda á mig
stamar sá sem auglýsir
í blaðinu dótið sitt
það er þeirra hvernig þeir selja sitt

 

Ekki benda á mig
vælir kaupandinn
röddin fölsk og rám
ég les aldrei svona klám

 

Tökum svona kauða
dæmum hann til dauða
forsíðuna auða
viljum ekki í dag.

 

Ekki benda á mig
segir sá siðblindi
og glottir í linsuna breitt
fyrir þetta ég fæ víst greitt.

 

Ekki benda á mig
segir hræsnin og krossar sig
ég veit hver sannleikurinn er
og það hentar alveg mér.

 

Tökum svona kauða
dæmum hann til dauða
forsíðuna auða
viljum ekki í dag.

 

Hvað er sannleikur?
spyr ég
í öllum litum
svara ég
sannleikurinn er meira
en hið prentaða orð
sannleikurinn getur aldrei,
réttlætt vinur aldrei
í hans nafni sé framið morð

höf: Bubbi Morthens


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 02:33:40 / Indie

2005 - 2006

Veiveivei þá er nýtt ár gengið í garð og dagsetningar komnar í '06 enn á ný eftir 100 ára bið. Hveragerðisbúar kvöddu árið 2005 með stæl með því að vekja alla bæjarbúa um hádegi með miklu hvelli og í kjölfarið flugeldasýningu og brennu á sama tíma og kláruðu svo showið með svörtum reykmökki yfir bænum. Og ekki þurfti meira en eina litla saklausa heftibyssu til að þetta fór allt af stað. En því miður var ekkert af þessu góðs viti og varð engin "hefðbundin" brenna og flugeldasýning um kvöldið því allt brann sem brunnið gat í "brennunni" fyrr um daginn, nánar tiltekið í hjálparsveitarhúsinu sjálfu!
En nú fer maður að spá... þessi bær er alveg mjööög spes. Er eitthvað sem hefur ekki átt sér stað þar ??
Síðastliðin ár hefur átt sér m.a. stað: bankarán og í kjölfarið eltingarleikur við ræningjana, mannrán, eldingar (sló í eitt hús og kviknaði í því), jarðskjálftar, núna flugeldaíkveikja og maður veit bara ekki hvað. Eflaust eitthvað sem ég er að gleyma. Þetta er náttúrulega bara rosalegt.... líklega bölvun á bænum eða e-ð :$

En já... eins og ég sagði.... er 2006 víst gengið í garð og spurning hvað eigi þá eftir að gerast.... Kannski á maður eftir að detta niður dauður, u never know.... Kannski á bara EKKERT eftir að gerast. Eða nei, það er varla hægt. Vá hvað ég væri til í að sjá svona "Fréttaannál" fyrir árið 2006 núna sem er alltaf á rúv og stöð2 á gamlársdag. Sjá allt sem á eftir að gerast, kannski maður gæti komið í veg fyrir eitthvað :O Hryðjuverk á ísland eða e-ð og allir halda að maður sé bara paranoid geðsjúklingur. Maður myndi sjá hverjir vinna HM í sumar og veðja mörg þúsundum á sigurvegarann og vinna fullt af pening :P En ef maður sæi bara í kannski Júní... "Heimsendir á jörðinni", djöfull hlyti það að vera hryllilegt að geta bara talið niður dagana þangað til maður og allir myndu deyja. Engin myndi trúa manni þar sem það eru svona milljón manns búið að spá fyrir heimsendi fyrir nánast hvert einasta ár síðustu árin. Hvort sem það er einhver lofsteinn eða ísöld eða hvaðsemer.
Allavega... þá vona ég bara þrátt fyrir allar þessar hrakspegúlur mínar að þetta verði gott ár :D Búinn að vera lesa stjörnuspár mínar(er hjátrúafyllsta manneskja sem til er) og þær lofa bara góðu held ég :)
Eitt er það allavega sem ég er soldið hræddur um... og það er elsku kallinn hann Pete Doherty. Hann kemst víst á tónlistarmannadauðaaldurinn á þessu ári, 27. Sem fólk líkt og Janis Joplin, Kurt Cobain, Jim Morrison og Jimi Hendrix kvöddu þessa veröld á. Það væri allvega heldur kaldhæðið ef hann Pete myndi deyja útaf þessari fíkn sinni á þessum aldri.... maður vonar bara það besta því þessi náungi er svo miklu miklu miklu meira en bara dópið og ruglið.

Vinsælt hefur víst verið að gera upp árið með orðum en ég hef lítinn áhuga á því.... einungis voru hápunktarnir að mínu mati að útskrifast úr grunnskóla, fara til mallorca, byrja í kvennó og kjölfarið kynnst fullt af frábæru fólki og svo loks Sigur Rósar tónleikarnir. Rétt að vona að hápunktarnir verði fleiri og jafnvel betri á næsta ári... þó ég hafi mínar efasemdir um það þar sem síðla árs 2005 var einhver besti tími ævi minnar.

Nóg komið af blaðri.... verð að fara sofa til að reyna rétt af sólarhringin aftur fyrir skólann á fimmtud.

INDIE

» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8